~*Ylfa BoLLa*~
25.09.2006 13:54:52 / ylfa

Tölvufræðitími frá hjélvíti

Hey yo all the niggas in da house!

Ég er hér helfersk í tölvufræðitíma. Nýbúin að gera geggjað Power Point verkefni.
En nóg um mig og mínar gjörðir.

Tölum um Þig...
Hvað er að frétta af þér?
Mömmu þinni?
Ertu fersk/ur?
Ertu búin að læra heima?
Hvað ertu að gera þessa dagana?

Bjalla í mig?

Flott er.

:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.09.2006 03:02:14 / ylfa

Lame ass weekend!

Hæ kæru hálsar!

Ég verð að segja að þessi helgi er að valda mér miklum vonbrigðum. Ekki einungis vegna þess að ALLIR virðast hafa farið að djamma þeas. farið eitthvert og hellt sig blindfulla. Heldur hef ég ekki gert neitt af öllu því sem ég ætlaði að gera! Well það er alltaf sunnudagurinn eftir. Jibbí.

Ég fekk samt gjöf áðan frá Svölu. KitKat Crunchy með hnetursmjöri. Afar bragðgott.

Það er svo skrítið þegar maður fær svona. "Vá hvað mig langar að þekkja þennan..." Fékk einmitt þannig í kvöld. Eða öllu heldur ég og Svala. Ég hef því ákveðið að stækka aðeins vinahóp minn og bæta nokkrum í safnið:D Ég ætla ekkert að fara frekar út í þá sálmana en þetta er sumsé ákveðið.

Ætla ekki að hafa þetta lengara í kvöld.

Verið sæl kæru vinir og endilega komið ykkur í það að hlusta á John Wayne Gacy, Jr. með Sufjan S. Tær snilld.

//Ylfus Maximus


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 00:43:28 / ylfa

Nammi, nammi Spaghetti!!

Salurinn hljóðnar.
Gestir bíða átekta.
Ljósið slökknar og ég hef upp raust mína.

Það er komið að því.
Þið fáið blogg.

 

Ég vil byrja á að tileinka þetta blogg nánum vini mínum sem loksins hefur stigið fram og viðurkennt sitt sanna eðli. Þessi vinur er Spagginn og hann er kominn til að vera.
(sjá www.blog.central.is/svali_ og www.blog.central.is/peran)

On Top of Spaghetti

On top of spaghetti,
All covered with cheese,
I lost my poor meatball,
When somebody sneezed.

It rolled off the table,
And on to the floor,
And then my poor meatball,
Rolled out of the door.

It rolled in the garden,
And under a bush,
And then my poor meatball,
Was nothing but mush.

The mush was as tasty
As tasty could be,
And then the next summer,
It grew into a tree.

The tree was all covered,
All covered with moss,
And on it grew meatballs,
And tomato sauce.

So if you eat spaghetti,
All covered with cheese,
Hold on to your meatball,
Whenever you sneeze.

Það var eitthvað við þetta lag sem minnti mig á hvernig Spagginn hreyfir sig.


Þetta er Spagginn-need I say more??


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2006 22:10:35 / ylfa

Helgin er skrall



Síðueigandi er á leið á tebó. Á tebói hittir hún marga vini sem hún hefur ekki hitt í langann tíma. Síðueigandi hlakkar til.
Vonandi á Síðueiganda eftir að finnast gaman á þessu tiltekna tebó.

Síðueigandi nennir ei að skrifa meira.

Síðueigandi óskar ykkur góðrar helgar.

//Ylfus Maximus

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 20:01:10 / ylfa

Sól og Sumar:D

Nú er vor í lofti. Himininn er blár og í dag skein sólin. Lífið leikur við mig þessa dagana. Nothing can bring me down.

Ég talaði við Birtu ástina mína áðan. Það er ekkert lítið sem ég saknaði hennar.

Þrjár mjög góðar ástæður fyrir því að ég dýrka Birtu ógeðslega mikið:
1. Hún er svo vibba fyndin. Ég er alltaf að standa mig að því að hafa hluti eftir henni sem mér finnst ógeðslega fyndnir!!
2. Mér líður ýkt vel í návist hennar! Hún er svo afslöppuð að það er ekki hægt annað.
3. Það er fáránlega gaman að djamma með henni!!!! Hún er svo hress og alltaf með stjörnur fyrir alla.

Í einu orði sagt.... MÖGNUÐ manneskja! LOVE YOU Birta Svavars:D


Dagarnir líða einn af öðrum. Allir frekar mikið eins. Ég er ekki byrjuð að vinna eða neitt.

Þetta var blogg!

Ég elska alla vini mína svo mikið og sakna allra MRingana sem ég er ekki búin að hitta lengi. You guys know who you are:D



//Ylfus Maximus

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 00:10:12 / ylfa

próf

...Er í prófum.
Þið vitið hvernig þetta er. Stærðfræði í dag, íslensk ritgerð á morgun.

Hittumst vonandi hinum megin...

//Ylfus Maximus


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 19:13:40 / ylfa

Ein & yfirgefin!

Jæja, nú er ég búin að vera ein heima í fimm daga (reyndar er lítið dýr nefnt Ásta Brá búið að vera hér líka) og það er skrítið en ég er ekki búin að gera neitt af mér!

Ég er búin að vera ótrúlega þæg. Meirað segja þægari en þegar mamma og pabbi eru á landinu. Meira heima. Ég hef því orðið fyrir miklum vonbrigðum með sjálfa mig. Þetta var einmitt tími til að gera einhvern skandal. En ég er bara eins og ung stúlka með tíkarspena. Sit heima og horfi á One tree hill. Er þetta ekki farið að verða súrt.

Hvað er annars að frétta af þér?

//Ylfus Maximus


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 20:03:12 / ylfa

Veraldarvefurinn lýgur!!

Vá, ég er búin að vera í tölvunni í allan dag. Og vitiði hvað ég er búin að vera gera.Undirbúið ykkur undir þetta. Ég er búin að vera að....

...taka próf á netinu.

Sorglegt ég veit. En ég er búin að komast að mörgu um sjálfa mig. Ég vissi til dæmis ekki að ég væri eldgyðja eða að ég ætti að tilheyra nördaklíkunni í skólanum mínum.
Að þessu og mörgu mörgu öðru komst ég í dag.

Ég verð að segja að ég er meiri manneskja eftir þetta. Ég komst nefnilega að því að veraldarvefurinn segir ekki alltaf satt og að margir fávitar búa til próf og setja á netið. Þetta tvennt vita nefnilega ekki allir.

Annars er ég líka búin að vera að downloada One tree hill (vá ég er örugglega lækka feitt í áliti hjá fólki eftir þetta blogg, shiiiit).
Núna er ég semsagt að sitja yfir tölvunni og bíða eftir að næsti þáttur verði tilbúinn. Hann er núna 79% kominn. Jeijj.

Ég þarf eiginlega líka að koma tvennu að. Ég á enga peninga og Gaukurinn er ógeðslegur staður. There I said it.

Ég sakna skólans.

//Ylfus Maximus


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 14:38:45 / ylfa

Dauði?

Hola!

Ég sá þetta á síðunni hjá Svala og fannst þetta sniðugt. Nú er ég bara hrædd:O

How Will I Die Quiz

How Will I Die Quiz

You will die at the age of 18

You will be killed by Mars aliens as they invade earth

Find out how you will die at Quizopolis.com


Þetta fær mann til að hugsa....

//Ylfus Maximus


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 20:19:15 / ylfa

Þegar ókunnugur maður hringir.

Ahh well...

Ég er á þeirri skoðun að páskafrí séu af guðsnáð. Hvað er betra en að sitja heima, horfa á sjónvarpið, sofa og éta góðan mat. Svo ekki sé minnst á að eyða ómetanlegum tíma með vinunum.

Ég gerðist svo góð að fara að læra í dag. Helvíti sátt bara.
Svo hringdi Svala sæta og fékk mig með sér í bíó kl. 3 og var áætlunin að fara á Ice Age II. Við mættum helv. ferskar í Regnbogann en þá kemur á daginn að það er uppselt á myndina. Ekki nóg með það heldur ætluðum við líka á þessa mynd í gærkvöldi og mættum í smárabíó kl. 8 en viti menn það var uppselt.
Við enduðum með að fara á einhverja súra mynd sem heitir "When a stranger calls" Ég mæli óhikað EKKI með þessari mynd. Eða jú kannski erf þú ert að eiga slæman dag þá geturu svosem alveg gert verra en þessi mynd. Svo kostar bara 400 kall í bíó kl. 3:D

Annars er matarboð núna og ég er að skemmta mér. Eða. Nei.
Ættingjar mínir eru að gera grín að fötunum mínum.

My love to you.

//Ylfus Maximus


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 19:12:21 / ylfa

:D

Shit, páskafríið er komið. Sem segir mér aðeins tvennt. Skólinn er að verða búinn og prófin nálgast. Hvorugt hljómar frekar spennandi.

Ég var að vinna í dag. Það var algert fokk shit. Fyndið hvað getur samt verið fáranlega gaman að gera eitthvað fáránlega leiðinlegt. Eins og til dæmis að vinna. Sérstaklega þegar maður er með jafn skemmtilegan vinnufélaga og ég. Hlutir eins og að vaska upp klístraða bakka hljóma eins og fallegt lag í eyrum mínum þegar það kemur frá henni Ernu. Haha kannski ekki alveg en það er allavega drullugaman að vinna með henni. Hringja eins og verstu gelgjur inná FM 957 og biðja um óskalag. Tær snilld.

Ágerður átti afmæli í byrjun mánaðirins nánar tiltekið 5. apríl. Til hamingju með það sæta. Við áttum helvíti gott kvöld saman MR vinkonurnar.

Arna sæta átti líka afmæli og hélt þrusu partí. Love you.

Ég hitti Svölu og Heru í gær og við áttum saman langþráð spjall. Það er langt síðan við höfum hisst bara til að spjalla. Við vorum allar á þvílíku trúnó og það var voða voða næs. Held við höfum legið í rúminu hennar heru í 4 tíma eða eitthvað um það bil svo mikið. Þetta var æði.

En já þetta var fokk dull blogg og nú er ég farin í sturtu.

//Amen


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 19:18:04 / ylfa

kostningar II

Hæj elskurnar.

Átti yndslegt kvöld í gær. Hitti allar gömlu vinkonurnar og er ennþá ekki búin að jafna mig á því hvað þetta var yfirmáta æðisgengið. Enn betra en ég bjóst við.

Drífa mín litla átti afmæli. Til hamingju með það.
Ég og Hera bökuðum köku og svo var gerð kóróna, kerti og kort. Það vorum við Hera, Svala og Birta sem gerðum þetta. Hera hringdi í Sif (mömmu Drífu) og við læddumst inn í húsið hjá þeim og komum öllu fyrir á meðan Drífa var grunlaus á efri hæðinni. Æjj þetta var kúl.
Það var sérstaklega gaman að hitta þær sem ég hitti sjaldnast. Þær Júlíönu, Örnu og Stellu;*

Annars er allt brjálað að frétta úr MR. Enginn kennari kemst í gegnum heilan tíma án þess að vera truflaður af æstum frambjóðendum sem þurfa að koma sínum helstu málefnum á framfæri.
Kasa er alltaf að versna. Ég veit ekki hvað var ekki verið að gefa þarna í dag. Quiznos, kökur, kristal, kók, melónur, banana, smokka, sleipiefni, sleikjóa, blandípoka og margt margt margt margt fleira.

Ég er ekki að fara að leggja af þessa vikuna. Annars er mjög gaman að þessu.

Ég er farin að hlakka til föstudagsins:)

Kveð að sinni,
Ylfa


» 6 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 15:41:17 / ylfa

kostningar

Senn líður að kostningum.

Við vinirnir, sem sagt ég, Birta, Sindri og Sunna erum að fara að bjóða okkur fram í MT. Fyirir ykkur sem ekki vitið þá er það málgagn Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík. Gefið út á tveggja vikna fresti og dreift í alla bekki skólans.

Við erum einn af fjórum hópum sem erum að bjóða okkur fram og ég veit ekki alveg með líkurnar. En ég er bjartsýn en sem komið er.

Smá ábendingar:
Dodda í Inspector.
Daða í Questor
Svanhvíti i forseta Framtíðarinnar.
Ásgerði í tónlistardeild.
Olgu Sonju eða Vilborgu Ásu í forseta listafélagsins
Írisi, Sonju, Unu og Söru í auglýsinganefnd.
Sigrúnu og Gunnhildi í Collegu.
Báru í Scibu.
MIG og mína í MT.
blabla og alla hina vinina.

Helgin var frábært. Fer ekki fleiri orðum um það.

Ylfa kveður að sinni.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 19:23:05 / ylfa

Hroki? Af hinu góða?

Sæl veriði!

Mikið er rætt um hinn tíbíska MR-ing. Svo virðist sem fólk í öðrum menntaskólum álíti MR-inga upp til hópa vera hrokafulla nördalinga sem ganga í lopapeysum og gúmmítúttum.

Í byrjun árs var ég mikið að reyna að verja mig og skólafélaga mína gegn ágengum orðrómum þess efnis að við værum uppfull af hroka og skít.
En nú þegar liðið er á árið þá hef ég, hin unga námsmær, gert mér grein fyrir því að hjá nemendum í Menntaskólanum við Tjörnina ríkir mikill hroki. Hroki sem ég elska.

Hvernig getur maður ekki verið stoltur af því að vera í MR?

Það þarf ekki meira en að ganga um Gamla skóla, kíkja á Íþöku og svo ég tali nú ekki um að sitja inni í hátíðarsal til þess að sjá það að þessi skóli hefur sögu sem tengist okkar ástæra Íslandi á ótalmarga vegu.

Ég meina, var þetta ekki akkúrat staðurinn þar sem Jón Sigurðson stóðu upp og mælti þau frægu orð: "Vér mótmælum allir."
Það held ég nú!

Annað sem ég hef einnig tekið eftir að ég er að fyllast af þessum umtalaða hroka og er stolt.
- Ég fyllst stolti þegar ég geng upp tröppurnar að MR.
- Ég er stolt þegar ég geng inní Gamla skóla.
- Ég er stolt þegar ég horfi á MORFÍS liðið okkar rústa hverjum andstæðingnum á fætur öðrum
- Ég verð meira að segja stolt þegar ég sé Gettu Betur liðið okkar tapa. Því ég hugsa með stolti til þess að við höfum unnið þessa keppni oftar en nokkur annar menntaskóli.
- Ég er stolt þega ég minnist þess að skólinn minn á 950 ára afmæli í ár. Toppaðu það!
- Ég segi fólki með stolti að ég sé nemandi í Menntskólanum í Reykjavík

Niðurstaða:
Ég er hrokfull og ég elskaða!

Ykkar einlæg,
Ylfa Hafsteinsdóttir, lúði með meiru.


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.02.2006 17:15:29 / ylfa

busy!

Ok, shiii...

Það er alvarleg vöntun á bloggi hér. Hef bara ekki tíma núna:/

Frumsýndum Birting við mjöög góðar undirtektir. Farið var í frumsýningarferð. Sem var geðveik.

Fleiri fréttir síðar.

Ylfz


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6